Til að komast að Sjónarvegi 16-24 er keyrt upp vinstra megin við Náttúrufræðihúsið, upp Urriðarholtstræti og svo til hægri á Brekkugötu og þar er farið til vinstri upp Sjónarveg. Fasteignasalan TORG kynnir: Nýjar og glæsilegar sér hæðir til sölu á frábærum útsýnisstað í Urriðaholti í Garðabæ. Um er að ræða 5 hús með efri og neðri sérhæðum á Sjónarvegi 16-24 efst í Urriðaholti. Sér inngangur, vandað efnisval s.s. Brúnás innréttingar, baðkar og sturta í öllum íbúðum, þrjú svefnherbergi og mikið útsýni. Næg bílastæði við húsið og sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Rúmgóðar svalir fylgja efri hæðum og sér afnotareitir á neðri hæðum. Mjög stutt er í leikskóla og skóla sem og út í fallega náttúru. Afhending fyrstu íbúða er við kaupsamning. Byggingaraðili er INGVAR & KRISTJÁN ehf. Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm fasteignasali í síma 694-4000, eða berglind@fstorg.is
Nánari lýsing á Sjónarvegi 18: íbúð 102: Um er að ræða 4ra herbergja sérhæð með sér inngangi á jarðhæð og suð-vestur verönd. Alls er eignin 115,1fm og skiptist íbúðin í hol, þvottaherbergi og geymslu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, og aðalrými með eldhúsi, borðstofu og stofu með útgengi út á suð-vestur verönd, um 17,6fm. Íbúðinni verður skilað fullbúinni án gólfefna, þó með flísalögðu baðherbergi ,þvottaherbergi/geymslu og forstofu. Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsing hjá Berglind Hólm fasteignasali í síma 694-4000, eða berglind@fstorg.is
Sjá nánar hér hluta af skilalýsingu, frágangur íbúða, séreignir: Íbúðirnar eru seldar tilbúnar en án gólfefna (þó verða gólf í baðherbergjum og þvottahúsum flísalögð) .
Veggir: Steyptir veggir. Sandspartlaðir og málaðir með plastmálningu. Léttir innveggir.
Loft:Loft verða sandspörtluð og máluð með plastmálningu.
Innihurðir: Þær eru sléttar, sprautu lakkaðar hvítar, með yfirföldum hvítum körmum. Allar innihurðir eru án þröskuldar, til að tryggð sé eðlileg loftræsting í herbergjum.
Innréttingar: Framleiðandi Brúnás ehf.
Hitalagnir. Húsið er upphitað með miðstöðvarofnum á hefðbundin hátt, þ.e. með hitastýrðum ofnlokum.
Baðherbergi: Salerni, handlaug með einnar handar blöndunartækjum, flísalögð afmörkuð sturta, hitastýrð blöndunartæki, sturtuhaus og handbrúsa á sturtu stöng. Öll postulínstæki verða hvít að lit
Eldhús: Eldhúsvaskur. Einnar handa blöndunartæki fyrir eldhúsvask. Tengimöguleiki fyrir uppþvottavél. Tæki í eldhúsi eru af AEG gerð, frá Ormsson hf.
AEG VEGGOFN BEB352010-M , AEG KERAMIK HELLUBORÐ, AIRFORCE EYJUHÁFUR F164.
Þvottahús. Skolvaskur. Blöndunartæki fyrir skolvask. Rafmagnstengingar fyrir þvottavél og þurrkara í þvottahúsi.
Sjá nánar skilalýsingu seljanda. Allar nánari upplýsingar, teikningar, skilalýsing og bókun skoðunar hjá Berglind Hólm fasteignasali í síma 694-4000, eða berglind@fstorg.is