Elka lgf. s. 863-8813 [email protected] // Hrönn lgfs. s: 692-3344 og Fasteignasalan TORG kynna með stolti;Ný, vönduð og glæsileg 5 herbergja raðhús með tveimur baðherbergjum og þvottahúsi við Furugerði í Reykjavík. Spennandi nýbyggingar úr vistvænum byggingarefnum á mjög eftirsóknarverðu svæði sem henta öllum aldurshópum. Íbúðir eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi.
Furugerði 45 er þriðja hús austan megin, skráð stærð 134,7 m², þar af er stærð íbúðar 125,7 m² og geymsla í bílakjallara er 9 m². Bílastæði í bílakjallara fylgir.
Bókið skoðun Elka s. 863-8813 / [email protected] / s. 692-3344Nánari lýsing; Gengið er inn um aðalinngang í
anddyri þar sem er
baðherbergi og
þvottahúsÚr anddyri er komið inn í
alrými þar sem stigi bindur saman hæðir.
Eldhús,
stofa og
borðstofa eru í sameiginlegu opnu rými. Stórir gluggar veita birtu inn í stofu og borðstofu. Á annarri hæð eru
fjögur svefnherbergi ásamt
baðherbergi.
Íbúðum er skilað fullbúnum með innréttingum en án gólfefna að undanskildu anddyri og votrýmum (baðherbergi og þvottahús) sem eru flísalögð.
Allar innréttingar eru í ljósum furulit frá
Voke3. Í eldhúsi eru borðplötur úr kvartzsteini í ljósum lit frá Technistone. Í eldhúsi eru vönduð innbyggð eldhústæki og spanhelluborð. Gólfhiti er á neðri hæð en á efri hæð er hefðbundið ofnakerfi. Útveggir og hluti innveggja innan íbúða eru úr krosslímdum timbureiningum og verður yfirborð þeirra annarsvegar sýnilegt CLT og hins vegar gifsklætt, spartlað og málað.
Íbúðir eru loftæstar með
sjálfstæðu loftskiptakerfi frá norska framleiðandanum Flexit. Kerfið blæs inn fersku lofti í íverurými og dregur út loft frá baðherbergjum, þvottahúsi og eldhúsi. Varmi úr útsoginu er fluttur yfir í ferska loftið með
varmaendurvinnslu án þess að blanda loftinu saman.
Gluggar eru ál-timbur gluggar frá danska framleiðandanum Ideal-Combi, Gler er tvöfalt k-einangrunargler og sérstaklega
hljóðeinangraðir þar sem við á.
Efnisval er með umhverfisáhrif í huga og uppbygging á húsunum miðast við að notuð séu efni sem þurfa lítið viðhald. Krosslímdar timbureiningar í burðarvirki húsanna eru einangraðar að utan og klædd veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu.
Lóðin Furugerði 23-49 skiptist í tvo reiti, Á reit A eru tvö fjölbýlishús á tveimur hæðum með samtals 20 íbúðum og á reit B eru 10 raðhús á tveimur hæðum. Undir húsunum er staðsteyptur kjallari með geymslum og bílastæðum.
Sér bílastæði í bílakjallaranum fylgir öllum raðhúsunum auk sameiginlegri hjóla/vagnageymslu. Gott aðgengi er fyrir gangandi og hjólandi umferð að lóðinni frá austur- og vesturenda.
Nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins www.furugerdi.isÁætluð afhending er mars 2023.
Upplýsingar veitir Hrönn í síma 692-3344 [email protected] eða Fasteignasalan TORG s. 520-9595