Furugerði 39, 108 Reykjavík (Austurbær)
109.500.000 Kr.
Raðhús
5 herb.
135 m2
109.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
9.500.000

Elka lgfs. s. 863-8813, Hrönn lgfs. s. 692-3344 og Fasteignasalan TORG kynna með stolti; Ný, vönduð og glæsileg 5 herbergja raðhús með tveimur baðherbergjum og þvottahúsi við Furugerði í Reykjavík. Spennandi nýbyggingar úr vistvænum byggingarefnum á mjög eftirsóknarverðu svæði sem henta öllum aldurshópum. Íbúðir eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi. Furugerði 39 er 135,5 m² að stærð, þar af er stærð íbúðar 125,7 m² og geymsla í bílakjallara er 9,8 m².  Bílastæði í bílakjallara fylgir.
AFHENDING MARS 2023

Bókið skoðun  Elka s. 863-8813 [email protected] // Hrönn s. 692-3344 // [email protected] 


Nánari lýsing; 
Gengið er inn um aðalinngang í anddyri þar sem er baðherbergi og þvottahús
Úr anddyri er komið inn í alrými þar sem stigi bindur saman hæðir. 
Eldhús, stofa og borðstofa eru í sameiginlegu opnu rými.  Stórir gluggar veita birtu inn í stofu og borðstofu.  Á annarri hæð eru fjögur svefnherbergi ásamt baðherbergi.

Íbúðum er skilað fullbúnum með innréttingum en án gólfefna að undanskildu anddyri og votrýmum (baðherbergi og þvottahús) sem eru flísalögð.
Allar innréttingar eru í ljósum furulit frá Voke3. Í eldhúsi eru borðplötur úr kvartzsteini í ljósum lit frá Technistone. Í eldhúsi eru vönduð innbyggð eldhústæki og spanhelluborð.  Gólfhiti er á neðri hæð en á efri hæð er hefðbundið ofnakerfi. Útveggir og hluti innveggja innan íbúða eru úr krosslímdum timbureiningum og verður yfirborð þeirra annarsvegar sýnilegt CLT og hins vegar gifsklætt, spartlað og málað.
 
Íbúðir eru loftæstar með sjálfstæðu loftskiptakerfi frá norska framleiðandanum Flexit. Kerfið blæs inn fersku lofti í íverurými og dregur út loft frá baðherbergjum, þvottahúsi og eldhúsi. Varmi úr útsoginu er fluttur yfir í ferska loftið með
varmaendurvinnslu án þess að blanda loftinu saman. 
Gluggar eru ál-timbur gluggar frá danska framleiðandanum Ideal-Combi, Gler er tvöfalt k-einangrunargler og sérstaklega hljóðeinangraðir þar sem við á.
 
Efnisval er með umhverfisáhrif í huga og uppbygging á húsunum miðast við að notuð séu efni sem þurfa lítið viðhald.  Krosslímdar timbureiningar í burðarvirki húsanna eru einangraðar að utan og klædd veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu.
 
Lóðin Furugerði 23-49 skiptist í tvo reiti, Á reit A eru tvö fjölbýlishús á tveimur hæðum með samtals 20 íbúðum og á reit B eru 10 raðhús á tveimur hæðum. Undir húsunum er staðsteyptur kjallari með geymslum og bílastæðum.
Sér bílastæði í bílakjallaranum fylgir öllum raðhúsunum auk sameiginlegri hjóla/vagnageymslu.  Gott aðgengi er fyrir gangandi og hjólandi umferð að lóðinni frá austur- og vesturenda.
 
Nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins www.furugerdi.is

Áætluð afhending er í mars 2023

Upplýsingar veitir Elka lgfs. s. 863-8813 [email protected] Hrönn í síma 692-3344 [email protected] eða Fasteignasalan TORG s. 520-9595
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.