Elka lgfs. s. 863-8813 // Hrönn lgfs. s. 692-3344 og Fasteignasalan TORG kynna með stolti;Ný, vönduð og glæsileg 4ra herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi við Furugerði 25 í Reykjavík.
Spennandi nýbyggingar úr vistvænum byggingarefnum á mjög eftirsóknarverðu svæði sem henta öllum aldurshópum. Íbúðir eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi.
Furugerði 25 er tveggja hæða fjölbýlishús, skráð stærð eignar er 114,4 m², þar af er stærð íbúðar 105,5 m² og geymsla í bílakjallara er 8,9 m². Bílastæði í bílakjallara fylgir.
Bókið skoðun - [email protected] s. 863-8813 // [email protected] // s. 692-3344 - Heimasíða verkefnisins (smella hér)Nánari lýsing; Gengið er inn um sérinngang af annarri hæð í
anddyri.Úr anddyri er komið inn í rúmgott
sjónvarpshol.
Eldhús,
stofa og
borðstofa eru í sameiginlegu opnu rými. Stórir gluggar veita birtu inn í stofu og borðstofu. Útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Þrjú svefnherbergi, 12,9 fm, 8,7 fm og 10,1 fm. Möguleiki er að fórna einu svefnherbergi fyrir stærri stofu.
Baðherbergi er með fallegri innréttingu, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Íbúðum er skilað fullbúnum með innréttingum en án gólfefna að undanskildu anddyri og votrýmum (baðherbergi) sem eru flísalögð.
Allar innréttingar eru í ljósum furulit frá
Voke-3. Í eldhúsi eru borðplötur úr HPL (high pressure laminate) með ljósgráu yfirborði með steináferð frá Kronospan. Í eldhúsi eru vönduð innbyggð eldhústæki og spanhelluborð. Útveggir og hluti innveggja innan íbúða eru úr krosslímdum timbureiningum og verður yfirborð þeirra annarsvegar sýnilegt CLT og hins vegar gifsklætt, spartlað og málað.
Íbúðir eru loftæstar með
sjálfstæðu loftskiptakerfi frá sænska framleiðandanum Swegon. Kerfið blæs inn fersku lofti í íverurými og dregur út loft frá baðherbergjum, þvottahúsi og eldhúsi. Varmi úr útsoginu er fluttur yfir í ferska loftið með varmaendurvinnslu án þess að blanda loftinu saman.
Gluggar eru ál-timbur gluggar frá danska framleiðandanum Ideal-Combi, Gler er tvöfalt k-einangrunargler og sérstaklega
hljóðeinangraðir þar sem við á.
-- athugið að myndir eru úr sýningaríbúðum en ekki af tiltekinni íbúð --
Efnisval er með umhverfisáhrif í huga og uppbygging á húsunum miðast við að notuð séu efni sem þurfa lítið viðhald. Krosslímdar timbureiningar í burðarvirki húsanna eru einangraðar að utan og klædd veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu.
Lóðin Furugerði 23-49 skiptist í tvo reiti, Á reit A eru tvö fjölbýlishús á tveimur hæðum með samtals 20 íbúðum og á reit B eru 10 raðhús á tveimur hæðum. Undir húsunum er staðsteyptur kjallari með geymslum og bílastæðum.
Nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins www.furugerdi.isÁætluð afhending er í apríl 2023.
Upplýsingar veitir Elka í síma 863-8813 // Hrönn í síma 692-3344 [email protected] eða Fasteignasalan TORG s. 520-9595