Sigríður Rut lgfs. í gsm 699-4610 og FASTEIGNASALAN TORG KYNNA: Glæsilega og bjarta 3ja herbergja íbúð á 2.hæð með útsýni yfir ylströndina. Um er ræða 4ra hæða lyftuhús í Sjálandinu í Garðabæ með stæði í bílageymslu og 30 fm svalaverönd í suðaustur. íbúðin er skráð samtals samkvæmt fmr. 103,7 fm og þar af er sérgeymsla í sameign skráð 6,4 fm.
Húsið er staðsett ofan við fjöruborðinu í Sjálandinu í Garðabænum. Aðgengi gott og allur frágangur sérlega glæsilegur með göngustígum og fallegri götumynd. Stutt er í hraunið, náttúruna og hafið með sitt skrúðuga fuglalíf að ógleymdri ylströnd. Vandaðar sérsmíðar eikarinnréttingar og eikarparket.Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða [email protected]·
Forstofa: Forstofan er með fallegum flísum á gólfi sem ná inn í eldhús. Gott skápapláss.
·
Þvottahús: Innaf forstofugangi, flísar á gólfi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
·
Eldhús: Með eikarinnréttingum á einum vegg með fallegri ljósri granít-borðplötum og flísum milli skápa. Ísskápur úr burstuðu stáli og bakaraofn í stíl í vinnuhæð. Tengi fyrir þvottavél.
Á móti þessari innréttingu er eldunar eyja sem snýr inn í stofu með keramikhelluborði og háf úr burstu stáli yfir. Fallegar glerhurðar á eyjunni sem snýr inn í aðalrýmið. Ljós granítborðplata og viðarborð að hluta til að sitja við.
·
Stofa/borðstofa: Sérlega glæsileg og björt með mjög góðum gluggum. Parket á gólfi. Útsýni yfir ylströndina og eitthvað út á sjó. Útgengt á rúmgóðar 30 fm. suðaustur svalaverönd.
·
Hjónaherbergi: Ágætlega rúmgott með fjórföldum fataskáp og eikar parket á gólfi.
·
Barnaherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp sem nær uppí loft og eikar parket á gólfi.
·
Baðherbergi : Glæsilegt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum, hornbaðkar með sturtuaðstöðu og glerhlið, upphengt salerni, mjög góðri eikarinnrétting með fallegri ljósri granítplötu og vaski á borði, stór spegill.
· Sameignin er snyrtileg, rafmagnsopnanir í hurðum, myndavéla-dyasímar. Lyftan gengur niður í bílastæðin, góð þvottaaðstaða fyrir bílana. Góð sérgeymsla er í sameign + hjóla- og vagnageymsla, útgengi í garð að framan verðu. Íbúðin gæti losnað fljótlega eftir kaupsamning.
Einstaklega glæsileg og björt eign á vinsælum stað neðangötu við Strandveg í Sjálandi Garðabæjar.
Fallegt útsýni. Stutt í fjölbreytta verslun og þjónustu. Einstakt umhverfi með fallegum göngu og hjólaleiðum við sjávarsíðuna.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila,
en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og
ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.